5. Eflum hafrannsóknir fyrir sjávarútveg

Markmið aðgerðarinnar er að styrkja laga- og stefnumótandi umgjörð Hafrannsóknarstofnunar og efla getu hennar til að sinna lykilhlutverki í sjálfbærri auðlindanýtingu.

Ráðist verður í heildarendurskoðun á hlutverki og umgjörð hafrannsókna með það að markmiði að skýra ábyrgð, styrkja rannsóknarinnviði og efla samþættingu rannsókna, tækniþróunar og atvinnustefnu. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja öfluga gagnaöflun, nýtingu nýrrar tækni og markvissa þekkingaruppbyggingu á sviði hafrannsókna. Með þessu verður vísindalegur grunnur ákvarðanatöku um nýtingu auðlinda efldur og þar með einnig samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs.

Tímarammi: Vor 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Samstarfsaðili: Hafrannsóknastofnun.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Auðlindir í allra þágu; Eflum vísindi og nýsköpun; Matvæli.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning.