5. Markviss móttaka stórfjárfestinga til atvinnuþróunar
Markmið aðgerðarinnar er að liðka fyrir atvinnuþróun og nýfjárfestingum um allt land og að gera Ísland að aðlaðandi og samkeppnishæfum kosti fyrir stórfjárfestingar.
Ráðist verður í heildstæða greiningu á regluverki, ferlum og skilyrðum sem varða erlendar fjárfestingar með það að markmiði að einfalda ferla, samræma kröfur og innleiða skilvirka, skýra og samræmda stafræna málsmeðferð.
Opnuð verður aðgengileg upplýsingagátt fyrir fjárfesta sem er ætlað að draga úr óvissu, töfum og umsýslukostnaði og styðja við verkefni allt frá hugmyndastigi til framkvæmdar.
Tímarammi: Fyrir árslok 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Forsætisráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Starfshópur um stórfjárfestingar í samstarfi við Íslandsstofu, fjármála- og efnahagsráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, innviðaráðuneytið, landshlutasamtök sveitarfélaga og lykilstofnanir (t.d. Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skattinn).
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Einföldum regluverk; Eflum vísindi og nýsköpun; Uppbygging um allt land.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Fullbúin upplýsingagátt fyrir fjárfesta.