6. Afgreiðsla leyfisveitinga á Ísland.is
Markmið aðgerðarinnar er að einfalda og hraða leyfis- og skipulagsferlum, auka gagnsæi og fyrirsjáanleika og bæta þannig þjónustu við atvinnulífið samhliða hagræðingu í umsýslu hjá hinu opinbera.
Þróuð verður heildstæð gátt á Ísland.is þar sem rafrænar umsóknir, skráningar og gagnaskil fara fram með rauntímayfirliti um stöðu mála. Áhersla verður lögð á notendavænt ferli og samþættingu milli stofnana þannig að dregið verði úr tvíverknaði, töfum og umsýslukostnaði. Þannig verða gæði og skilvirkni opinberrar þjónustu aukin.
Tímarammi: Vor 2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Forsætisráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Starfshópur um þjónustugátt, Stafrænt Ísland í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, ýmsar stofnanir og Samtök atvinnulífsins.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Einföldum regluverk.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma ráðuneyta. Mögulegar fjárfestingar í stafvæðingu hjá stofnunum.
Afurð: Stafræn gátt sem gefur fyrirtækjum möguleika á að sækja um leyfi, senda skráningar og skila gögnum vegna margs konar leyfisskyldrar starfsemi. Stefnt að því að slík umsýsla verði alfarið stafræn vorið 2027.