6. Bætt málsmeðferð umsókna um atvinnu- og dvalarleyfi erlendra sérfræðinga
Markmið aðgerðarinnar er að koma á einfaldara, hraðara og skilvirkara kerfi um atvinnu- og dvalarleyfi erlendra sérfræðinga.
Gert er ráð fyrir að umsýsla og útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa erlendra sérfræðinga verði sameinuð í einn farveg hjá Útlendingastofnun. Betri málsmeðferð verður meðal annars náð fram með skýrari forgangsröðun og aukinni stafvæðingu umsókna.
Samhliða þessu verður unnið að því að styrkja getu stjórnvalda til að meta gögn umsækjenda, þar á meðal gögn til staðfestingar á sérfræðiþekkingu og hæfi. Markmiðið er að til Íslands komi sannanlega hæfir sérfræðingar sem skortur er á, og að málsmeðferð sé í samræmi við lög, reglur og hagsmuni samfélagsins.
Tímarammi: Haust 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Tryggjum færni til framtíðar.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagabreyting sem tryggir sameiningu afgreiðslu atvinnu- og dvalarleyfa undir einni stofnun. Uppfæra reglugerð varðandi erlenda sérfræðinga. Verklagsreglur um forgangsröðun við úrvinnslu umsókna. Skýrar leiðbeiningar fyrir umsækjendur um atvinnuleyfi fyrir erlenda sérfræðinga.