6. Endurskoðun regluverks og gjaldtöku í sjókvíaeldi

Markmið aðgerðarinnar er að tryggja sjálfbæran og samkeppnishæfan vöxt sjókvíaeldis með skýrari lagaumgjörð, skilvirkari stjórnsýslu og hvötum til umhverfisvænni framleiðsluhátta.

Lagaumhverfi greinarinnar verður endurskoðað með það að markmiði að samræma leyfisveitingar á hendi einnar stofnunar og samhæfa eftirlit. Jafnframt verða lögfestir hvatar sem styðja við fjárfestingu í umhverfisvænni eldisaðferðum, svo sem lokuðum kvíum og notkun ófrjórra laxa, auk aðgerða sem styðja við styttri tíma hverrar kynslóðar í hafi. Innleidd verða sérstök smitvarnasvæði og endurskoðuð aðferðafræði við mat á burðarþoli, meðal annars með hliðsjón af meðaltali lífmassa yfir tíma.

Fiskeldisgjald verður jafnframt endurskoðað með það að markmiði að taka mið af afkomu greinarinnar fremur en veltu og tryggja samfélaginu sanngjarna hlutdeild í auðlindarentu.

Tímarammi: Vor 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Hafrannsóknastofnun, Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Uppbygging um land allt; Auðlindir í allra þágu; Matvæli.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning.