6. Markviss og öflugur stuðningur við rannsóknir og nýsköpun
Markmið aðgerðarinnar er að tryggja að opinber stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun skili aukinni framleiðni, verðmætasköpun og atvinnutækifærum um land allt.
Aðgerðin felur í sér endurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, samkeppnissjóði og aðra opinbera fjármögnun með það að markmiði að auka skilvirkni, einfalda ferla og skerpa á árangursmati. Áhersla verður lögð á gagnsæi, yfirsýn yfir dreifingu opinbers stuðnings og skýra tengingu við forgangsverkefni atvinnustefnunnar. Horft verður til samþættingar við alþjóðlegt samstarf og samvinna efld við einkaaðila til að hraða fjármögnun og innleiðingu nýrra lausna í atvinnulífi og opinberri þjónustu.
Sérstök áhersla verður lögð á markvissan stuðning á sviði gervigreindar, tækni- og hugverkaiðnaðar, líf- og heilbrigðistækni og við þróun lausna í loftslags- og orkumálum. Einnig verður áhersla á aukinn útflutning, framleiðni og alþjóðlega samkeppnishæfni skapandi greina. Með virku samstarfi rannsóknaaðila, atvinnulífs og stjórnvalda má bæta hagnýtingu rannsókna og styrkja stöðu Íslands á sviðum þar sem landið hefur samkeppnisforskot og möguleika til árangurs.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rannís, Skatturinn, Nýsköpunarsjóðurinn Kría og hagaðilar á sviði rannsókna og nýsköpunar.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Eflum vísindi og nýsköpun; Tryggjum færni til framtíðar; Einföldum regluverk; Nýsköpun og tækniþróun.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagasetning.