7. Löggjöf um rýni fyrir erlendar fjárfestingar

Markmið aðgerðarinnar er að hér á landi verði skýr og lögbundinn rammi um rýni á erlendum fjárfestingum líkt og innan annarra EES-ríkja.

Unnið verður að heildarlöggjöf um rýni á fjárfestingum erlendra aðila undir formerkjum þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Lögunum er ætlað að tryggja faglega, skilvirka og fyrirsjáanlega málsmeðferð, með sérstakri áherslu á viðkvæma innviði og þjóðhagslega mikilvæga starfsemi. Slíkur rammi um faglega rýni á erlendum fjárfestingum er ekki til staðar í dag en með því að gera umgjörðina skýrari, skilvirkari og fyrirsjáanlegri má auka traust á íslensku fjárfestingaumhverfi.

Samhliða vinnu að löggjöfinni verða undirbúnar reglugerðir og leiðbeiningar með stoð í lögunum. Verða þær gefnar út á íslensku og ensku í kjölfar gildistöku laganna.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Atvinnuvegaráðuneytið leiðir vinnu í samráði við önnur ráðuneyti.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum; Einföldum regluverk; Aukið áfallaþol.

Áætlaður kostnaður: Árlegur kostnaður áætlaður 30–40 m.kr. Innheimta þjónustugjalds kemur til móts við þann kostnað.

Afurð: Ný löggjöf.