7. Öflugir innviðir fyrir rannsóknir og nýsköpun í tækni- og hugverkaiðnaði
Markmið aðgerðarinnar er að styrkja tækniinnviði og samnýtingu þeirra til að styðja vísindafólk og frumkvöðla í tækni- og hugverkaiðnaði og samkeppnishæfni Íslands á sviði djúptækni og hugverka.
Aðgerðin felur í sér gerð þarfagreiningar og markvissa uppbyggingu rannsókna- og prófunaraðstöðu í samstarfi við háskóla og fyrirtæki, meðal annars við Djúptæknisetur á vegum Vísindagarða Háskóla Íslands og Tæknisetur ehf., og innviðaverkefna á vegum háskóla um land allt. Áhersla verður lögð á öflugt deilihagkerfi og aukna samnýtingu innviða til að tryggja skilvirka nýtingu fjárfestinga.
Innviðasjóður verður efldur og þátttaka aukin í alþjóðlegu samstarfi til að tryggja aðgengi að fremstu rannsókna- og prófunaraðstöðum og styrkja stöðu íslensks tækni- og hugverkaiðnaðar.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið, háskólar og stofnanir og fyrirtæki á sviði tækni og hugverkaiðnaðar.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Eflum vísindi og nýsköpun; Nýsköpun og tækniþróun.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma árið 2027.
Afurð: Kortlagning og áætlun um uppbyggingu rannsókna- og tækniinnviða í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Uppfærður vegvísir um Innviðasjóð og samnýtingu rannsókna- og tækniinnviða.