7. Sérstök umgjörð um landeldi sem taki tillit til sérstöðu þess

Markmið aðgerðarinnar er að stuðla að sjálfbærum og fyrirsjáanlegum vexti landeldis með skýru og stöðugu regluverki sem tekur mið af sérstöðu starfseminnar.

Lagaumhverfi verður endurskoðað þannig að sett verði sérstök og afmörkuð umgjörð um landeldi aðgreind frá regluverki sjókvíaeldis. Leyfisveitingar verða á hendi einnar stofnunar og eftirlit samræmt. Reglur verða einfaldaðar og sniðnar að rekstrar- og umhverfislegum forsendum landeldis, með það að markmiði að skapa skýr fjárfestingarskilyrði og tryggja sjálfbæra uppbyggingu greinarinnar.

TímarammiVor 2026. 

ÁbyrgðarráðuneytiAtvinnuvegaráðuneytið. 

Samstarfsaðilar: Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun. 

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Uppbygging um land allt; Auðlindir í allra þágu; Matvæli.

Áætlaður kostnaðurInnan ramma. 

Afurð: Lagasetning.