7. Skattaafsláttur til handa aðfluttum sérfræðingum

Markmið aðgerðarinnar er að auka aðdráttarafl Íslands fyrir erlenda sérfræðinga og styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegum vinnumarkaði.

Núverandi fyrirkomulag veitir að uppfylltum skilyrðum 25% lækkun á tekjuskatti fyrstu þrjú árin frá ráðningu. Aðgerðin felur í sér lengingu gildistíma úrræðisins til að bæta kjör, styrkja samkeppnisstöðu Íslands gagnvart erlendum sérfræðingum og þannig styðja við þekkingar- og verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Fjármála- og efnahagsráðuneytið og starfshópur sem skipaður er samkvæmt lögum til að afgreiða umsóknir.
Samstarfsaðilar: Atvinnuvegaráðuneytið.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning.