8. Endurskoðun fasteignaskatts fyrir landeldi

Markmið aðgerðarinnar er að bæta samkeppnishæfni og fyrirsjáanleika rekstrarumhverfis landeldis með sanngjarnari og samræmdri álagningu fasteignaskatts og tryggja jafnræði við aðrar atvinnugreinar.

Farið verður yfir núverandi lagaumgjörð og hvernig flokkun fiskeldis samræmist flokkun annarra atvinnugreina, svo sem landbúnaði, þegar kemur að álagningu fasteignaskatts. Jafnframt verður ósamræmi í fasteignamati og álagningu á landsvísu tekið til skoðunar til að tryggja jafnræði og aukinn fyrirsjáanleika við framkvæmd.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Matvæli.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning ef greining sýnir fram á þörf.