8. Líf- og heilbrigðistækni sem mikilvæg stoð í útflutningi

Markmið aðgerðarinnar er að auka verðmætasköpun og útflutning í líf- og heilbrigðistækni með markvissri uppbyggingu á grunni sérstöðu Íslands í lífvísindum, erfðagögnum og heilbrigðisþjónustu.

Aðgerðin beinist að því að efla samstarf háskóla og atvinnulífs um rannsóknir, framhaldsnám og frumkvöðlastarf á sviði lífvísinda og heilbrigðistækni. Lögð verður áhersla á uppbyggingu rannsókna- og gagnainnviða, þróun prófunaraðstöðu innan heilbrigðiskerfisins og aukið samstarf stofnana og sprotafyrirtækja um innleiðingu nýrra lausna.

Jafnframt verða fjárfestingar efldar í samstarfi við atvinnulífið, meðal annars með stuðningi nýsköpunarsjóðsins Kríu, til að hraða innleiðingu lausna og styrkja útflutningsgetu greinarinnar.

Tímarammi: 20262027.

Ábyrgðarráðuneyti: Heilbrigðisráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið,

háskólar, heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Eflum vísindi og nýsköpun; Tryggjum færni til framtíðar; Heilsa.

Áætlaður kostnaður: 200–400 m.kr.

Afurð: Nýjar lausnir í heilbrigðisþjónustu í samstarfi við Stafræna heilsu, og með stuðningi Heilsu-Kríu.