8. Rekstrarumhverfi gagnavera
Markmið aðgerðarinnar er að tryggja skýrt regluverk um rekstur og skattskil gagnavera.
Aðgerðin felur í sér greiningu og mótun regluverks sem á að stuðla að skýrara rekstrarumhverfi gagnavera hér á landi.
Gagnaveraiðnaður er fremur nýtilkominn og nokkur álitaefni bíða úrlausnar svo sem varðandi skattskil gagnavera og skattalega meðferð starfseminnar. Með skýrari lagaumgjörð verður dregið úr réttaróvissu og fyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi greinarinnar aukinn, sem er sérstaklega mikilvægt í ljósi umfangsmikilla fjárfestinga og alþjóðlegrar starfsemi. Skýr umgjörð mun jafnframt stuðla að bættri samkeppnisstöðu Íslands og auka traust fjárfesta til lengri tíma.
Tímarammi: Haust 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Fjármála- og efnahagsráðuneytið í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Orkusækinn iðnaður.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Greining og laga- og reglugerðarsetning.