9. Aukið efnahagslegt öryggi

Markmið aðgerðarinnar er að skilgreina og efla efnahagslegt öryggi Íslands í ljósi aukinnar óvissu á sviði alþjóðaviðskipta.

Skipaður verður starfshópur með fulltrúum stjórnvalda, atvinnulífs og háskólasamfélags sem falið verður að skilgreina hagsmuni Íslands í utanríkisviðskiptum með hliðsjón af markmiðum stjórnvalda um efnahagslegt öryggi. Starfshópnum verður jafnframt falið að móta tillögur um ráðstafanir sem styðja við efnahagslegt öryggi til framtíðar.  

Íslenskt atvinnulíf og velsæld samfélagsins eru háð greiðum aðgangi að erlendum mörkuðum og aðföngum. Við breyttar aðstæður, þar sem viðskipti eru í auknum mæli nýtt sem tæki í milliríkjasamskiptum, er mikilvægt að móta heildstæða sýn á efnahagslegt öryggi og áfallþol samfélagsins. Afurð aðgerðarinnar verður skýrsla með greiningu á helstu áhættuþáttum og tillögum að aðgerðum.  

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Utanríkisráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Utanríkisráðuneytið og starfshópur um utanríkisviðskipti og efnahagslegt öryggi Íslands skipaður fulltrúum frá utanríkisráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, atvinnulífinu og háskólasamfélaginu.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukið áfallaþol; Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Greining. Á grundvelli hennar verður ráðist í aðgerðir.