9. Byggjum upp samkeppnishæfni skapandi greina

Markmiðið er að auka útflutning og framleiðni í skapandi greinum með markvissri sókn á alþjóðamörkuðum.

Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands í nýsköpun samkvæmt Alþjóðahugverkastofnuninni endurspeglast sá styrkur ekki í útflutningi skapandi afurða. Mótuð verður sértæk aðgerðaáætlun fyrir hverja grein, hvatar og fjárfestingarumgjörð styrkt og hrint í framkvæmd samræmdu markaðs- og útflutningsátaki í samstarfi við atvinnulífið og menningarstofnanir.

Tímarammi: 2026-2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
 
Samstarfsaðilar: Fjármála- og
efnahagsráðuneytið, Íslandsstofa og menningar- og listamiðstöðvar.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum; Upplifun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Aðgerðaáætlanir.