9. Stefna um kolefnisstjórnun
Markmið aðgerðarinnar er að móta heildstæða og skýra stefnu um kolefnisstjórnun sem skapar fyrirsjáanlega laga- og rekstrarlega umgjörð og styður við uppbyggingu verðmætaskapandi starfsemi á sviði kolefnisföngunar, -bindingar, -nýtingar og -geymslu.
Unnið verður að mótun stefnu stjórnvalda um kolefnisstjórnun þar sem skilgreind verða markmið, ábyrgð og forgangsröðun verkefna á sviði kolefnisföngunar, -bindingar, -nýtingar og -geymslu, sem og förgunar kolefnis. Samhliða verður unnin heildstæð greining á laga- og reglugerðarumhverfi með það að markmiði að tryggja skýran lagaheimildaramma, skilvirka leyfisveitingaferla og öfluga umhverfisvernd.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Umhverfis- og orkustofnun og hagaðilar.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Eflum vísindi og nýsköpun; Loftslag.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Stefna.