Niðurgreiðslur húshitunar

Um 90% landsmanna hafa aðgang að jarðhita til að kynda hús sín. Íbúar þeirra svæða sem ekki hafa aðgang að jarðhita og kynda hús sín með raforku eða olíu njóta niðurgreiðslna á húshitun þar sem hún er mun dýrari en húshitun með jarðhita.

Árið 2002 voru samþykkt sérstök lög um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið fer með yfirumsjón með þeim lögum en almenn umsýsla með niðurgreiðslum til húshitunar er í höndum Umhverfis- og orkustofnunarsem veitir frekari upplýsingar.

Á sérstökum fjárlagalið er tilgreind á hverju ári sú fjárhæð sem varið er til niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (sbr. fjárlagaliður 04-583 Niðurgreiðslur á húshitun).

Sjá einnig: