Visthönnun vöru
Markmið laga um visthönnun vöru er tengist orkunotkun, er að stuðla að visthönnun vöru sem tengist orkunotkun með það að markmiði að efla hönnun, framleiðslu, markaðssetningu og notkun á vörum sem eru umhverfisvænar, með minni orkunotkun og umhverfisálag að leiðarljósi. Lögin skulu tryggja samræmi í visthönnun innan Evrópska efnahagssvæðisins og frjálst flæði á slíkum vörum á sameiginlegum innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.
Lögin gilda um vörur sem tengjast orkunotkun og fjalla um hvaða kröfur þær skulu uppfylla svo að setja megi þær á markað og/eða taka í notkun hér á landi og veita lagastoð fyrir nánari reglum sem settar verða svo að vara sem tengist orkunotkun megi fara á markað og vera tekin í notkun hér á landi.
Mannvirkjastofnun fer með framkvæmd laganna.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög nr. 42/2009 um visthönnun vöru er tengist orkunotkun.Reglugerðir sem settar hafa verið á grundvelli laganna; sjá 17. og 18. gr. (upptalning hér ekki tæmandi):
Auðlindir