Samræmdir textar tvísköttunarsamninga og MLI

Eftirfarandi textar sýna tvísköttunarsamninga með breytingum Marghliða samnings um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnun skattstofna og tilfærslu hagnaðar (MLI). Þeir eru gerðir í samstarfi við viðkomanda ríki og hugsaðir til þess að skýra réttarstöðu skattgreiðenda og einfalda lestur samninganna.

Fyrirvari: Samræmdu textarnir eru aðeins til leiðbeiningar. Upprunalegir tvísköttunarsamnisamningarnir eru einu skjölin sem hafa lagalegt gildi.