Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

ÁTVR er í eigu íslenska ríkisins og starfar samkvæmt lögum um verslun með áfengi og tóbak. Verkefni þess eru m.a. innkaup á áfengi til smásölu og tóbaki til heildsölu, birgðahald og dreifing á áfengi til áfengisverslana, álagning og innheimta tóbaksgjalds og rekstur áfengisverslana. ÁTVR heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið.

ÁTVR leggur á og innheimtir tóbaksgjald af tóbaksvörum sem hafa verið fluttar hingað til lands eða eru framleiddar hér á landi. Um fjárhæð tóbaksgjalds fer eftir ákvæðum laga um gjald af áfengi og tóbaki.

Yfirlit yfir lög og reglur ÁTVRLög um verslun með áfengi og tóbakLög um áfengiLög um tóbaksvarnirLög um gjald af áfengi og tóbaki

Stjórnsýsla skattamála