Æskulýðsstefna
Mennta- og barnamálaráðuneytið gaf út sína fyrstu stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna í mars 2022.
Um var að ræða ákveðin tímamót í sögu málaflokksins og vegvísir til framtíðar um það sem mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst leggja áherslu á til að styðja við félags- og tómstundastarf. Aðgerðir byggðar á stefnunni miða að því að tryggja öllum börnum og ungmennum fjölbreytt og framúrskarandi tómstunda- og félagsstarf með virka þátttöku að leiðarljósi.
Gildistími stefnunnar er til ársins 2030 með aðgerðaáætlun til þriggja ára í senn.