Ný lög samþykkt um réttindavernd fatlaðs fólks
Alþingi samþykkti í gær ný heildarlög um réttindavernd fatlaðs fólks. Lögin leysa af hólmi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Meginmarkmið nýju laganna er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi…
Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks er liður í innleiðingu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn hefur nú verið lögfestur á Íslandi.
Til að tryggja farsæla innleiðingu samningsins hér á landi var árið 2022 hleypt af stokkunum umfangsmikilli vinnu við gerð landsáætlunarinnar.
Alþingi samþykkti landsáætlunina sem þingsályktunartillögu í mars 2024 og inniheldur hún 60 aðgerðir. Markmiðið er að fatlað fólk geti notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við annað fólk.
Landsáætlunin markar tímamót, enda er Ísland nú í fyrsta sinn með heildstæða stefnu í málefnum fatlaðs fólks.
Hér að ofan getur þú nálgast skjalið í heild sinni: Landsáætlun um innleiðingu á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
Miðstöð um auðlesið mál tók saman auðlesna útgáfu af landsáætluninni. Þú getur nálgast hana hér.
Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, ásamt því að efla og vinna að virðingu fyrir mannlegri reisn þess.
Viltu fylgjast með landsáætluninni og innleiðingu hennar? Þú getur skráð þig á póstlistann hjá okkur og munt fá fréttir sendar til þín með tölvupósti.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið bauð til opinna samráðsfunda vítt og breitt um landið í tengslum við gerð landsáætlunarinnar.
Alþingi samþykkti landsáætlunina sem þingsályktunartillögu á Alþingi þann 20. mars 2024.
Afar fjölmennt samráðsþing fór fram í Silfurbergi í Hörpu í febrúar 2023 um landsáætlunina. Að þinginu stóðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp. Þingið var allt saman tekið upp og upptökuna má nálgast hér að ofan.
Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður meginverkfæri stjórnvalda í heildstæðri stefnumótun í málaflokki fatlaðs fólks. Áætlunin nær til allra þeirra málasviða sem falla undir samninginn.
Landsáætlunin felur í sér skýra framtíðarsýn, val og skilgreiningu meginmarkmiða sem stefnt skal að og framsetningu aðgerða til að innleiða samninginn. Byggt er á kortlagningu á fjárhagslegri og faglegri stöðu málaflokksins og skoðun kosta í framþróun þjónustunnar.
Markmiðin sem skilgreind eru í landsáætlun byggja á greinum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þeim fylgir síðan áætlun um aðgerðir. Framvindan verður metin á árlegu samráðsþingi.
Verkefnið var unnið í víðtæku samráði og með þátttöku fatlaðs fólks, ráðuneyta, sveitarfélaga, hagsmunasamtaka, einstaklinga og almennings.
Alþingi samþykkti í gær ný heildarlög um réttindavernd fatlaðs fólks. Lögin leysa af hólmi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Meginmarkmið nýju laganna er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi…
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti rétt í þessu ávarp Íslands á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk.
Íslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í bókuninni er kveðið á um heimild fatlaðs fólks til að beina kvörtunum vegna brota á…
Starfshópur undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur skilað skýrslu með tillögum að aðgerðum fyrir 7-10 ára áætlun um að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði.
Verkefnastjórn um gerð landsáætlunarinnar er skipuð 13 manns sem koma úr ráðuneytum, félagasamtökum og frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Nánar
Grundvallarhugmyndin í vinnunni við gerð landsáætlunarinnar er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Stefnumótun og gerð landsáætlunar um innleiðingu samningsins er skipt upp í tvo áfanga:
Fatlað fólk