Reiknivél fyrir dagpeninga og akstursgjald

Reiknivélin er aðeins til upplýsinga. Sé munur á upplýsingum í reiknivél og auglýsingu um ferðakostnað þá gildir auglýsingin.
0

Akstursgjald

0
Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun. Kannað er verð á algengum gististöðum, jafnmörgum á höfuðborgarsvæðinu og utan þess og fundið meðaltal. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu.

Meginreglan er að dagpeningar standi undir útlögðum kostnaði. Því er heimilt að færa frádrátt á móti dagpeningum séu skilyrði uppfyllt. Að hámarki má færa frádrátt sem nemur dagpeningum samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar.

Sjá nánar um skattalega meðferð á vef Skattsins.

Heimilt er að greiða hærri dagpeninga en sem nemur ákvörðun ferðakostnaðarnefndar hverju sinni. Þó ber að halda eftir og standa skil á staðgreiðslu af mismun.

Sjá nánar um skattalega meðferð á vef Skattsins.

Akstursgjaldi er almennt ekki ætlað að standa undir kostnaði við ferðir milli heimilis og vinnustaðar þar sem það telst til eigin nota. Fari ríkisstarfsmaður hins vegar einstakar ferðir á eigin bifreið að beiðni yfirmanns skal greiða fyrir það akstursgjald.

Sjá nánar reglugerð um bifreiðamál ríkisins og um ökutækjastyrki á vef Skattsins.

Akstursgjaldinu er ætlað að meta bæði rekstrarkostnað og fyrningu ökutækja niður á ekinn kílómetra. Stuðst er við meðalkostnað bifreiða til fyrningar og miðað er við að akstur á ári sé 15.000 km. Rekstrarkostnaður er uppreiknaður miðað við viðeigandi vísitölu.

Ekki er gerður greinarmunur á því hvort ekið sé á rafmagnsbifreið eða bifreið sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Með vaxandi rafbílaeign hér á landi gæti það þó breyst og forsendur útreikninga tekið mið af því.

Hvert verður/var farið?
0
0

Miðað við skráð miðgengi SDR, 164,91 kr.

Heilir dagar á ferðalagi erlendis teljast til greiddra daga. Ferðadagur telst hluti af ferð og er greiddur. Ferðadagur er bæði brottfarardagur og komudagur.

Dæmi: Ef flogið er erlendis á mánudegi og heim á miðvikudegi þá greiðast dagpeningar vegna þriggja daga og tveggja gistinátta.

Til greiddra daga teljast ferðadagar og eru þeir að hámarki 2 á ferð. Brottfarardagur og komudagur. Þegar ferðast er frá USA með flugi sem hefst að kvöldi telst brottfarardagur sem ferðadagur. Þ.e. það bætist ekki við aukadagur þrátt fyrir að lent sé að morgni næsta dag. Þegar ekki þarf að greiða kostnað við gistingu, t.d. vegna þess að starfsmaður er um borð í flugvél, þá skulu ekki greiddir dagpeningar vegna gistingar. Meginregla við greiðslu dagpeninga er að greiða útlagðan kostnað.

Dæmi: Þegar ferðast er til USA á mánudegi og aftur heim á miðvikudegi þá greiðast dagpeningar vegna þriggja daga og tveggja gistinátta.

Meginregla við útreikning dagpeninga er að þeim er ætlað að standa undir kostnaði starfsmanns sem hlýst af fjarveru frá heimili vegna vinnu. Því er reiknaður fjöldi gistinátta sem þarf að greiða fyrir og fjöldi daga sem þarf að greiða fyrir uppihald. Fjöldi SDR eininga fer einnig eftir því hversu kostnaðarsamt svæðið er sem dvalið er á. Að lokum fer fjárhæðin í krónum eftir SDR gengi útgreiðsludags dagpeninga. SDR gengi er skráð og birt hjá Seðlabanka Íslands.
Kostnaður við gistingu og uppihald er breytilegur á milli borga og er reynt að koma til móts við það með flokkun svæða í flokka 1-4. Þessi flokkun tekur þó breytingum og er flokkun svæða til endurskoðunar hjá ferðakostnaðarnefnd.

Gengisskráninguna má nálgast t.d. á vef Seðlabanka Íslands.

SDR er skammstöfun á reiknieiningu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn notar og er reiknuð út frá gengi tiltekinnar körfu gjaldmiðla sem helst eru notaðir í milliríkjaviðskiptum.

Meginreglan er að dagpeningar standi undir útlögðum kostnaði. Því er heimilt að færa frádrátt á móti dagpeningum séu skilyrði uppfyllt. Að hámarki má færa frádrátt sem nemur dagpeningum samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar.

Sjá nánar um skattalega meðferð á vef Skattsins.

Almennt er dagpeningum ætlað að standa undir öllum venjulegum ferðakostnaði öðrum en fargjöldum, þar með talið kostnaði að og frá flugvöllum.

Heimilt er að greiða hærri dagpeninga en sem nemur ákvörðun ferðakostnaðarnefndar hverju sinni. Þó ber að halda eftir og standa skil á staðgreiðslu af mismun.

Sjá nánar um skattalega meðferð á vef Skattsins.

Reiknivélin er aðeins til upplýsinga. Sé munur á upplýsingum í reiknivél og auglýsingu um ferðakostnað þá gildir auglýsingin.