Grænbók um mannréttindi
Grænbók um mannréttindi ásamt fylgiriti um mannréttindastofnanir var birt í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun árs 2023. Frestur til að skila umsögnum og ábendingum var til og með 13. febrúar 2023.
Grænbók er yfirlit yfir stöðumat og valkosti og er undanfari frekari stefnumótunar. Við vinnuna var lagt mat á stöðu mannréttindamála á Íslandi þar sem safnað er á einn stað upplýsingum um mannréttindi, þróun, tölfræði, samanburði við önnur lönd og samantekt um mismunandi leiðir eða áherslur til að mæta þeim áskorunum sem við blasa í mannréttindamálum, m.a. í tengslum við stofnun sjálfstæðrar innlendrar mannréttindastofnunar.
Opnir samráðsfundir
Í tengslum við grænbókarvinnu voru haldnir samráðsfundir um landið. Á þeim var rætt um stöðu mannréttinda á Íslandi, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara.