Ellefu verkefni á sviði jafnréttismála hljóta styrk
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til 11 verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er 10 milljónir króna.
Markmið jafnréttislaga er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Allar manneskjur skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni.
Jafnréttismálin koma þó við sögu innan allra ráðuneyta. Öll ráðuneytin hafa gert jafnréttismat á málefnasviðum og málaflokkum sem þau bera ábyrgð á og hafa þær upplýsingar verið teknar saman í skýrslu um kortlagningu kynjasjónarmiða.
Jafnréttisverðlaun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur eru veitt árlega en að verðlaununum standa ríkisstjórn Íslands og Evrópuráðsþingið. Verðlaununum er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna.