Styrkir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

Ráðherra jafnréttismála veitir styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála einu sinni á ári með heimild í 42. gr. laga um opinber fjármál.

Styrkir eru veittir samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni að fenginni tillögu starfshóps sem ráðherra skipar. Starfshópurinn hefur það hlutverk að meta styrkhæfi umsókna og gera tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. Hópurinn skal skipaður fulltrúum með þekkingu á sviði jafnréttismála.

Ráðuneytið auglýsir í október ár hvert eftir umsóknum um styrki. Ákveði ráðherra að leggja áherslu á ákveðin málefni innan málaflokksins skal það koma fram í auglýsingu og njóta þau verkefni að jafnaði forgangs.

Reglur um úthlutun styrkja sem ráðherra jafnréttismála veitir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála
Sjá einnig: