Jafnrétti á vinnumarkaði

Endurmat
Virðismatskerfi
Launakönnun
Launavottun

Lög um jafna meðferð á vinnumarkaði

Með lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 er skýrt kveðið á um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Þetta þykir mikilvægt til að stuðla að virkri þátttöku sem flestra á vinnumarkaði en atvinnuþátttaka er talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt. Við lagasetninguna var höfð hliðsjón af tilskipun Evrópuráðsins 2000/78/EB um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífinu.

Með skýru banni við mismunun á vinnumarkaði er horft til þess að stuðla að virkri þátttöku sem flestra í íslensku atvinnulífi og koma í veg fyrir félagslega einangrun einstaklinga. Markmiðið er einnig að sporna við því að skoðanir á mismunandi verðleikum kynþátta festi hér rætur.

Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði

Jafnréttisstofu er falið að hafa eftirlit með framkvæmd laganna.

Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna

Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 sem heyra undir dómsmálaráðuneytið, kemur fram að markmið laganna sé meðal annars að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kyns á vinnumarkaði, ásamt því að gera öllum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf, óháð kyni. Jafnframt er kveðið á um að atvinnurekendur og stéttarfélög skulu vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök kvenna- og karlastörf. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum. Atvinnurekendur og stéttarfélög skulu enn fremur gæta að stöðu fólks með hlutlausa kynskráningu í Þjóðskrá á vinnumarkaði. Loks kemur fram að fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skuli setja sér jafnréttisáætlun eða að samþætta jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu sína.

Lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna

Jafnréttisstofu er falið að hafa eftirlit með framkvæmd laganna.

Kærunefnd jafnréttismála

Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök sem telja að ákvæði laga þessara hafi verið brotin gagnvart sér geta í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sinna, eftir því sem við á, leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála.

Sjá einnig: