Jafnréttisþing 2025

Jafnréttisþingi 2025 er lokið

Jafnréttisþingið 2025 var haldið fyrir fullum Norðurljósasal Hörpu, 22. maí 2025. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, setti þingið og stýrði pallborðsumræðum auk þess að afhenda Samtökum um kvennaathvarf jafnréttisviðurkenningu.

Þingið var að þessu sinni helgað baráttunni gegn mansali og varpaði skýru ljósi á mikilvægi þess að Ísland taki markviss skref í baráttunni gegn kynferðislegu mansali og skipulagðri brotastarfsemi.

Fyrirlesarar á þinginu voru Carolina Barrio Peña, saksóknari og sérfræðingur hjá Refsivörslusamvinnustofnun ESB (Eurojust) og Janna Davidson, talskona sænskra stjórnvalda í mansalsmálum og sérfræðingur í aðgerðaþróun hjá sænsku lögreglunni.

Samantekt frá jafnréttisþingi 2025

Hægt er að horfa á upptökur frá þinginu í heild sinni:

Fyrir hlé – Setning þings, erindi Carolina Barrio Peña og Janna DavidsonEftir hlé – Pallborðsumræður og afhending jafnréttisverðlauna

Myndir frá þinginu

Ljósmyndirnar tók Sigurjón Sigurjónsson.

Fyrri jafnréttisþing

Jafnréttisþing 2022Jafnréttisþing 2020Jafnréttisþing 2018Jafnréttisþing 2015