Löggjöf um jafnrétti
Um jafnréttismál gilda:
- lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (jafnréttislög)
- lög nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála
- Lög nr. 53/2026 um skýrslugjöf um kynbundinn launamun (lög um breytingar á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna) sjá nánar hér: Kynbundin launamunur
Þá eru fleiri lög sem taka til jafnréttismála og ber þar að nefna sérstaklega:
lög nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræðilög nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðarlög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði
Á undirsíðum má finna frekari umfjöllun um lögin.
Markmið laga þessara er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Nánar um jafnréttislöginMarkmið laganna er meðal annars að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kyns á vinnumarkaði, ásamt því að gera öllum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf, óháð kyni.
Nánar um jafnrétti á vinnumarkaðiMarkmið laga þessara er að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins.
Bann við mismununLög nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði kveða á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar.
Nánar um kynrænt sjálfræðiÖnnur lög
Á Íslandi eru fleiri lög sem hafa það að markmiði að tryggja jafnrétti kynjanna. Hér að neðan má lesa stutta umfjöllun um nokkur slík.