Landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026-2030

Landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026-2030 inniheldur 25 aðgerðir í sjö undirflokkum.

Landsáætlunin tekur mið af samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningurinn). Jafnframt inniheldur áætlunin aðgerðir um meðferð kynferðisbrota.

Mælaborðið sýnir framgang aðgerða á myndrænan hátt. Litaval byggist á huglægu og hlutlægu mati á stöðu aðgerðanna.

Mælaborðið er uppfært tvisvar á ári.