Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningu íslenskrar tungu 16. nóvember og nýtur við það verkefni stuðnings sérstakrar ráðgjafarnefndar. Nefndin vinnur tillögur sínar til ráðherra meðal annars upp úr ábendingum sem almenningur getur sent inn. [Hægt er að koma ábendingum á framfæri hér.](http://Menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningu íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi og nýtur við það verkefni stuðnings sérstakrar ráðgjafarnefndar. Nefndin vinnur tillögur sínar til ráðherra meðal annars upp úr ábendingum sem almenningur getur sent inn. Hægt er að koma ábendingum á framfæri hér. Síðasti dagur til að skila inn ábendingum er 25. október n.k.) Síðasti dagur til að skila inn ábendingum er 25. október n.k.

Reglur um verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningu íslenskrar tungu.

  1. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember, sem jafnframt er afmælisdagur Jónasar Hallgrímsson, skal árlega veita verðlaun sem kennd eru við skáldið, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin skal veita einstaklingi sem hefur með eftirtektarverðum hætti unnið íslenskri tungu gagn eða glætt hana nýju lífi, til dæmis með skáldskap, fræðistörfum, kennslu, þýðingum eða á annan hátt stuðlað að framgangi íslenskunnar, eflingu hennar, miðlun eða nýsköpun.

  2. Við sama tilefni er veitt sérstök viðurkenningu íslenskrar tungu. Viðurkenninguna skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa á einn eða annan hátt sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki.

  3. Þriggja manna ráðgjafarnefnd skilar tillögum til ráðherra um verðlaunahafa og viðurkenningarhafa. Almenningur skal jafnframt eiga þess kost að koma tillögum á framfæri við nefndina. Í ráðgjafarnefnd skal velja einstaklinga sem koma að málefnum íslenskunnar úr fjölbreyttum áttum.

Merki dags Jónasar Hallgrímssonar

Þessi hafa hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar:

  1. Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og grunnskólakennari, 1996
  2. Gísli Jónsson menntaskólakennari, 1997
  3. Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 1998
  4. Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, 1999
  5. Magnús Þór Jónsson, Megas, 2000
  6. Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, 2001
  7. Jón Böðvarsson, 2002
  8. Jón S. Guðmundsson, 2003
  9. Silja Aðalsteinsdóttir, 2004
  10. Guðrún Helgadóttir, 2005
  11. Njörður P. Njarðvík, 2006
  12. Sigurbjörn Einarsson, 2007
  13. Herdís Egilsdóttir, kennari, 2008
  14. Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur og skáld, 2009
  15. Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri, 2010
  16. Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, 2011
  17. Hannes Pétursson rithöfundur, 2012
  18. Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður, 2013
  19. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur 2014
  20. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur 2015
  21. Sigurður Pálsson skáld 2016
  22. Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, 2017
  23. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, 2018
  24. Jón G. Friðjónsson prófessor, 2019
  25. Gerður Kristný, skáld, 2020
  26. Arnaldur Indriðason, rithöfundur 2021
  27. Bragi Valdimar Skúlason skáld, grínisti, auglýsingamaður og uppfræðari, 2022
  28. Áslaug Agnarsdóttir þýðandi, 2023
  29. Ari Eldjárn, uppistandari, 2024
  30. Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, 2025

Sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu hafa hlotið:

  1. Orðanefnd byggingarverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996
  2. Orðanefnd rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996
  3. Hið íslenska bókmenntafélag, 1997
  4. Blaðamannafélag Íslands, 1998
  5. Félag íslenskra leikskólakennara, 1998
  6. Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, 1999
  7. Mjólkursamsalan, 1999
  8. Stóra upplestrarkeppnin, 2000
  9. Dr. Richard N. Ringler, 2000
  10. Félag framhaldsskólanema, 2001
  11. Námsflokkar Reykjavíkur, 2001
  12. Íslensk plöntuheiti, rafræn útgáfa, 2002
  13. Með íslenskuna að vopni, hagyrðingakvöld Vopnfirðinga, 2002
  14. Lesbók Morgunblaðisins, 2003
  15. Spaugstofan, 2003
  16. Kvæðamannafélagið Iðunn, 2004
  17. Strandagaldur, 2004
  18. Lestrarmenning í Reykjanesbæ, 2005
  19. Bókaútgáfan Bjartur, 2005
  20. Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands, 2006
  21. Leikhópurinn Hugleikur, 2006
  22. Samtök kvenna af erlendum uppruna, 2007
  23. Fréttastofa Útvarps, 2007
  24. Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, 2008
  25. Útvarpsleikhúsið, 2008
  26. Þórbergssetur á Hala í Suðursveit, 2009
  27. Baggalútur, 2009
  28. Möguleikhúsið 2010
  29. Hljómsveitin Hjálmar 2010
  30. Hljómsveitin Stuðmenn, 2011
  31. Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði, 2012
  32. Máltæknisetur 2013
  33. Ljóðaslamm Borgarbókasafns 2013
  34. Vefnámskeiðið Icelandic Online 2014
  35. Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014
  36. Bubbi Morthens tónlistarmaður 2015
  37. Ævar vísindamaður (Ævar Þór Benediktsson) 2016
  38. Gunnar Helgason, rithöfundur, 2017
  39. Verkefnið Skáld í skólum, 2018
  40. Reykjavíkurdætur, 2019
  41. Félag ljóðaunnenda á Austurlandi, 2020
  42. Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarkona, 2021
  43. Tungumálatöfrar, Ísafirði, 2022
  44. Menningin gefur samstarfsverkefni Ós Pressunnar, Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur, 2023
  45. Kveikjum Neistann, Vestmanneyjarbær, 2024
  46. Samtökin ‘78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Ísland, 2025