Lýðskólar
Samkvæmt lögum um lýðskóla nr. 65/2019 hafa lýðskólar það að markmiði að veita almenna menntun og uppfræðslu í samræmi við ákvæði laganna og undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi. Samkvæmt 3. grein laganna getur mennta- og barnamálaráðherra veitt lýðskólum viðurkenningu til að starfa undir heitinu lýðskóli til allt að fimm ára í senn. Í slíkri viðurkenningu felst staðfesting á því að starfsemi lýðskóla uppfylli almenn skilyrði laganna og reglna sem settar eru með stoð í þeim á þeim tíma sem viðurkenning er veitt.
Viðurkenning lýðskóla
Lýðskólar eru viðurkenndir á grundvelli 3.gr. laga um lýðskóla nr. 65/2019. Jafnframt gildir um þá reglugerð um viðurkenningu lýðskóla nr. 430/2020.
Við afgreiðslu umsókna er gengið úr skugga um að starfsemi viðkomandi lýðskóla uppfylli einstaka þætti skilyrða laga um lýðskóla nr. 65/2019 og reglugerðar um viðurkenningu lýðskóla nr. 430/2020. Mikilvægt er að umsækjandi kynni sér öll skilyrði laga og reglna um starfsemi lýðskóla áður en sótt er um viðurkenningu. Þá er nauðsynlegt að öllum tilskildum fylgiskjölum sé skilað með umsókn, hvort sem um nýja umsókn er að ræða eða endurnýjun viðurkenningar.
Umsókn og fylgigögnum skal skilað í tölvupósti á [email protected] og skal berast frá eiganda eða stjórn lýðskóla.
Eitt skilyrða fyrir veittri viðurkenningu er að húsnæði sem umsækjandi notar til reglubundinnar starfsemi fái jákvæða umsögn slökkviliðs um eldvarnir. Þetta á við um heimavist og allt það húsnæði sem umsækjandi notar til reglubundinnar kennslustarfsemi. Mennta- og barnamálaráðuneytið sendir beiðni um úttekt slökkviliðs þegar umsókn berst ráðuneytinu á kostnað umsækjanda viðurkenningar. Gjald vegna úttektar er innheimt af slökkviliði í því umdæmi þar sem húsnæði er staðsett. Ef umsögn slökkviliðs liggur þegar fyrir, má hún ekki vera eldri en 6 mánaða gömul. Eigandi og/eða forráðamaður húsnæðisins þarf að sjá til þess að húsnæði uppfylli kröfur í samræmi við reglugerð nr. 723/2017 um eldvarnir og eldvarnaeftirlit.
Umsókn um endurnýjun viðurkenningar ásamt fylgigögnum skal senda til ráðuneytisins að lágmarki þremur mánuðum áður en hún rennur út.
Umsóknarsniðmát og fylgiskjöl
Fylla skal út eftirfarandi skjöl:
Fjárhagsáætlunin skal vera rökstudd og samanburðarhæf við tölur í ársreikningum. Hver fjárhagsáætlun skal endurspegla raunhæfar áætlanir fyrir hvert ár. Ef þurfa þykir, má krefjast bankatryggingar af lýðskóla.
Önnur fylgigögn með umsókn:
- Skólanámskrá
- Ársreikningar síðustu þriggja ára.
- Vottorð heilbrigðisyfirvalda: leggja skal fram starfsleyfi og nýjustu niðurstöðu eftirlits heilbrigðiseftirlits.
Út frá þessum gögnum verður m.a. metin:
- Fjárhagsleg ábyrgð
- Fjármögnun starfseminnar
- Fjárhagslegt rekstraröryggi
- Hvort nemendur geti lokið námi sínu
- Aðstaða til kennslu
Nýir lýðskólar sem hefja starfsemi og sækja um viðurkenningu skulu sundurliða áætlanir um rekstur sérstaklega vel. Í stað ársreikninga skulu stofnskjöl, svo sem samþykktir, skipulagsskrá o.þ.h., auk staðfestingar á greiðslu stofnframlags/hlutafjár og skuldbindinga eigenda fylgja umsókninni. Fyrsta viðurkenningin gildir í eitt ár og þarf fjárhagsáætlun aðeins að ná yfir líðandi ár og næsta ár þar á eftir. Í stað ársreikninga eru send inn stofnskjöl, s.s. samþykktir, skipulagsskrá o.þ.h., auk staðfestingar á greiðslu stofnframlags/hlutafjár og skuldbindinga eigenda gagnvart umsækjanda.