Menntastefna stjornvalda til ársins 2030

Framúrskarandi menntun alla ævi

Markmið menntastefnu er að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem allir geta lært og allir skipta máli. Skýr stefna um forgangsröðun í þágu menntunar og þekkingarsköpunar eykur lífsgæði og verðmætasköpun.

Menntun er lykill að tækifærum framtíðar og eitt helsta hreyfiafl samfélaga og velsældar mannkyns. Á tímum fádæma umskipta, óvissu og örra tæknibyltinga verða þjóðir heims að búa sig undir aukinn breytileika og sífellt flóknari áskoranir. Framtíðarhorfur íslensku þjóðarinnar velta á samkeppnishæfni og sjálfbærni íslenska menntakerfisins. Velgengni byggir á vel menntuðum einstaklingum með skapandi og gagnrýna hugsun, félagsfærni og góð tök á íslensku og erlendum tungumálum til að takast á við hnattrænar áskoranir.

Menntun styrkir, verndar og vekur viðnámsþrótt einstaklinga og samfélaga. Með menntastefnu verður lögð áhersla á að styrkja viðhorf Íslendinga til eigin menntunar með vaxtarhugarfar að leiðarljósi. Þekkingarleitinni lýkur aldrei og menntun, formleg sem óformleg, er viðfangsefni alla ævi. Skólar og aðrar menntastofnanir skulu vera eftirsóknarverðir vinnustaðir og kennarastarfið áhugavert þar sem það er meðal mikilvægustu starfa samfélagsins.

Öflugt og sveigjanlegt menntakerfi skal stuðla að jöfnum tækifærum til náms því allir geta lært og allir skipta máli. Allir hafi tækifæri, á eigin forsendum og án nokkurrar mismununar, til að þroskast og auka hæfni sína.

Aðdragandi

Vinna við menntastefnu til ársins 2030 hófst árið 2015 með víðtæku samstarfi ríkis og sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila skólasamfélagsins um greiningu á framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla eða menntun án aðgreiningar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

Nánar um aðdraganda

Erlent samstarf

Á árunum 2018-2020 átti sér stað mikið samráð við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Mennta- og menningarmálaráðherra átti fundi með Ángel Gurría framkvæmdastjóra og Andreas Schleicher yfirmanni menntamála í höfuðstöðvum stofnunarinnar í París vorið 2018. Síðar sama ár var skipulagður framhaldsfundur ráðherra með sérfræðingum OECD á sviði menntamála í París.

Education Policy 2030 - Menntastefna 2030 á enskuNánar um samstarf við OECD

Innleiðing

Menntastefnan er innleidd með þremur aðgerðaáætlunum yfir þrjú tímabil. Hver aðgerðaáætlun er lögð fram við upphaf hvers tímabils, ásamt aðgerðum og árangursmælikvörðum.

1. Aðgerðaáætlun 2021–2024 á ensku2. Aðgerðaáætlun 2025–2027

3. Aðgerðaáætlun 2027–2030

3. Aðgerðaáætlun 2027–2030
Áætlunum er hrint í framkvæmd í víðtæku samráðu við stofnanir og samtök sem að málinu koma.

Árangursmælikvarðar eru vörður til að tryggja framgang stefnunnar.

Tímalína
Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum
á Íslandi Rannsókn RHA
Leiðarvísir um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skólaog frístundastarf
Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda
Frístundaheimili –leikur og nám á forsendum barna
Mat á innleiðingu aðalnámskrár grunnskóla. Niðurstöður kannana
og aðgerðir til úrbóta
Menntun fyrir alla – horft fram á veginn
Styrking leikskólastigsins
Menntun til framtíðar
Tækifæri ungs fólks með þroskahömlun og skyldar raskanir að
loknu námi á starfsbraut
Drög að stefnu: Menntun barna og ungmenna
með fjölbreyttan tungumálaog menningarbakgrunn
Framtíðarstefna um samræmt námsmat. Tillögur starfshóps um markmið, hlutverk, framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa.
Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla
Aðgerðir í menntamálum: Nýliðun kennara
Grænbók um fjárveitingar til háskóla