Flugvellir og skipulagsreglur
Á Íslandi eru þrettán flugvellir fyrir áætlunarflug, þar af fjórir millilandaflugvellir. Til viðbótar eru skráðir á sjötta tug lendingarstaða samkvæmt skráningu Samgöngustofu.
Keflavíkurflugvöllur er helsti millilandaflugvöllur landsins en Akureyrar-, Egilsstaða- og Reykjavíkurflugvöllur eru jafnframt opnir fyrir millilandaflugi. Auk þeirra hefur áætlunarflug verið á Bíldudal, Ísafjörð, Gjögur, Grímsey, Húsavík, Þórshöfn, Vopnafjörð, Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjar.
Uppbygging og þjónusta innanlandsflugvalla miðast að því að uppfylla markmið samgönguáætlunar um greiðar, hagkvæmar og öruggar samgöngur. Áætlunarflugvellir eru nauðsynlegur hluti samgöngukerfisins og grundvöllur þess að íbúar landsins alls geti notið með jöfnum hætti þeirrar þjónustu sem íslenska ríkið tryggir borgurum. Isavia ohf. sér um rekstur flugvalla í innanlandskerfi fyrir hönd íslenska ríkisins á grundvelli þjónustusamnings. Flugvellir í innanlandskerfi eru ekki reknir á markaðsforsendum heldur sem samgönguinnviðir og því er rekstrarkostnaður þeirra að miklu leyti greiddur úr ríkissjóði.
Isavia ohf. á og rekur Keflavíkurflugvöll. Flugbrautir vallarins eru þó í eigu íslenska ríkisins og fer utanríkisráðherra með forræði á þeirri eign en Isavia ohf. leigir flugbrautirnar.
Skipulagsreglur
Ráðherra er heimilt samkvæmt lögum um loftferðir að setja skipulagsreglur fyrir flugvelli sem ætlaðir eru til almennrar notkunar. Segir meðal annars í lögunum að skipulagsreglur skuli hafa að geyma fyrirmæli um skipulag innan flugvallarsvæðis, starfsheimildir, starfsemi og umferð innan svæðisins. Einnig skulu vera þar fyrirmæli um það svæði utan flugvallar þar sem rétt er að setja takmörkun á hæð mannvirkja og annarra hluta, t.d. húsa, stanga og trjáa eða takmörkun á meðferð fasteigna eða hluta, t.d. að því er varðar leiðslur eða atvinnurekstur, enda séu slíkar kvaðir nauðsynlegar í þágu almenns öryggis. Kveða skal glöggt á um mörk þess svæðis sem skipulagið tekur yfir.
Efni skipulagsreglna snýr að umferð og skipulagi innan flugvallarsvæðis, meðferð sýnilegra lasergeisla og takmörkunum á hindrunum í nágrenni flugvalla til að tryggja að mannvirki eða aðrar hindranir s.s. trjágróður eða búnaður raski ekki flugleiðum eða ógni flugi með öðrum hætti.
Settar hafa verið skipulagsreglur fyrir eftirtalda flugvelli:
Akureyrarflugvöllur
Akureyrarflugvöllur - uppdráttur 1Akureyrarflugvöllur - uppdráttur 2Akureyrarflugvöllur - uppdráttur 3Akureyrarflugvöllur - uppdráttur 4Egilsstaðaflugvöllur
Egilsstaðaflugvöllur - uppdráttur 1Egilsstaðaflugvöllur - uppdráttur 2Egilsstaðaflugvöllur - uppdráttur 3Egilsstaðaflugvöllur - uppdráttur 4Keflavíkurflugvöllur
Skipulagsreglur Keflavíkurflugvallar - greinargerð og skilmálarUppdráttur skilgreindra hindranasvæðaFrétt um gildistöku nýrra skipulagsreglna fyrir Keflavíkurflugvöll (24.09.20)Skipulagsnefnd KeflavíkurflugvallarReykjavíkurflugvöllur
Auglýsing í Stjórnartíðindum um gildistöku skipulagsreglna fyrir Reykjavíkurflugvöll (23. júlí 2009)Umsagnir um athugasemdir við skipulagsreglur ReykjavíkurflugvallarReykjavíkurflugvöllur - uppdráttur 1Reykjavíkurflugvöllur - uppdráttur 2Reykjavíkurflugvöllur - uppdráttur 3Sjá einnig:
Gagnlegir tenglar
Isavia ohf.AkureyrarflugvöllurEgilsstaðaflugvöllurKeflavíkurflugvöllurReykjavíkurflugvöllurFréttir
Utanríkisráðuneytið, Innviðaráðuneytið
21 ágúst 2026
Utanríkisráðuneytið
Nýr loftferðasamningur Ísland og Moldóvu skapar grundvöll fyrir auknu samstarfi og mögulegri þróun flugsamgangna milli Íslands og Moldóvu
26 maí 2026
Flug og flugvellir