Alþjóðasamningar
Íslensk stjórnvöld taka virkan þátt í starfi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar og sækja m.a. fundi í laganefnd og siglingaöryggisnefnd stofnunarinnar.
Laganefndin fjallar um öll lagaleg álitamál sem falla innan valdsviðs stofnunarinnar. Í henni sitja fulltrúar allra aðildarríkja.
Siglingaöryggisnefndin fjallar um tæknileg álitamál sem varða siglingaleiðir, smíði skipa og skipsbúnaðar, mönnun, reglur til að forðast árekstra og fleira.
Ísland er aðili að flestum alþjóðasamningum stofnunarinnar, þar á meðal alþjóðasamningi um öryggi mannslífa á hafinu, 1974 (SOLAS), samþykkt um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna, alþjóðasamþykkt um menntun og þjálfun 1978 (STCW), skírteini og vaktstöður áhafna á fiskiskipum 1995 (STCW-F). Þá er Ísland aðili að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna frá 2006 (MLC).
Sjá einnig:
Áhugavert
Alþjóðasamningur um öryggi mannslífa á hafinu, SOLAS, 1974Alþjóðasamþykkt um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómannaAlþjóðasamningur um skírteini, vaktstöður áhafna á fiskiskipum 1995 (STCW-F)Siglingar og hafnir