Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga. Innviðaráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs en honum til ráðuneytis er sjö manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að loknum sveitarstjórnarkosningum.

Hlutverk Jöfnunarsjóðs er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins. Þá greiðir sjóðurinn framlög til samtaka sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra aðila í samræmi við ákvæði laga.

Upplýsingagátt um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga með myndrænni framsetningu gagna

Gagnvirk upplýsingagátt um framlög

Framlög - yfirlit

Úthlutanir og talnaefni

Starfsemi

Lagagrundvöllur

Aðstoð við sameiningar