Breytingar á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum
Fyrirhugaðar breytingar á opinberu eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum miða að því að gera kerfið skilvirkara og samræmdara. Áhersla er lögð á skýrari verkaskiptingu, aukna samhæfingu og betra aðgengi að upplýsingum. Eftirliti verður áfram sinnt staðbundið um allt land.
Eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum fellur undir tvö ráðuneyti stjórnvalda. Eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og eftirlit með matvælum undir atvinnuvegaráðherra. Þar af leiðandi eru lagðar fram breytingar í tveimur frumvörpum sem taka til hvors málaflokks fyrir sig.
Í frumvarpi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er lagt til að ábyrgð á framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum verði færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Á sama tíma hefur atvinnuvegaráðherra kynnt breytingar þar sem gert er ráð fyrir að eftirlit með matvælum verði fært til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna.
Þessar spurningar og svör taka fyrst og fremst til frumvarps umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, en breytingarnar eru hluti af heildarendurskipulagningu eftirlits á þessu sviði.
Sjá einnig:
Umhverfismál