Spurt og svarað um breytingar á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum

Fyrirhugaðar breytingar á opinberu eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum heyra undir bæði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og atvinnuvegaráðuneytið

Spurningar og svörin hér fyrir neðan taka fyrst og fremst til frumvarps umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, en breytingarnar eru hluti af heildarendurskipulagningu eftirlits á þessu sviði.

Í dag er eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum framkvæmt af ellefu aðilum á tveimur stjórnsýslustigum, ríki og sveitarfélögum. Kerfið samanstendur af níu heilbrigðiseftirlitssvæðum sveitarfélaga, auk Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar. 

Samkvæmt lögum bera MAST og Umhverfis- og orkustofnun ábyrgð á yfirumsjón og samræmingu eftirlitsins til að tryggja að það sé framkvæmt með samræmdum hætti. Greiningar hafa þó sýnt að stofnanirnar hafa ekki alltaf haft nægjanleg úrræði til að framfylgja þessu hlutverki að fullu, meðal annars hvað varðar boðvald og heildaryfirsýn. 

Eftirlitið er því í framkvæmd sinnt af mörgum sjálfstæðum einingum með mismunandi verklagi, gagnakerfum og gjaldskrám. Þetta getur leitt til ósamræmis milli landshluta, ólíkra krafna og þess að fyrirtæki og almenningur eiga erfiðara með að nálgast skýrar upplýsingar og vita hvert eigi að leita. Reynslumikið og hæft fagfólk sinnir eftirlitinu, en fyrirkomulagið í heild hefur þó leitt til þess að ábyrgðarskipting og yfirsýn eru ekki nægilega skýr, sem getur dregið úr samræmi, gagnsæi og skilvirkni. 

Málið hefur verið til skoðunar um langt skeið og ýmsar greiningar og úttektir verið framkvæmdar hvað varðar fyrirkomulag eftirlits. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur bent á að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi uppfylli ekki að fullu kröfur EES-samningsins, einkum hvað varðar samræmi, skýra ábyrgð og yfirstjórn. Ríkisendurskoðun bent einnig bent á skort á samræmi í matvælaeftirliti og að skoða þyrfti að færa matvælaeftirlit á eina hendi. 

Fyrirhugaðar breytingar eru því settar fram til að bregðast við þessum áskorunum og tryggja skilvirkara, samræmdara og gagnsærra eftirlit um land allt.

 

  

Breytingin felur í sér að ábyrgð á framkvæmd eftirlits verður færð frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar annars vegar og Stofnunar atvinnuveganna hins vegar. 

Eftirlitið sjálft heldur áfram og verður áfram sinnt staðbundið um allt land. Lagt er upp með að nýta áfram þá sérfræðiþekkingu sem til staðar er í dag hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga.  

Sett verður á fót samræmt upplýsingakerfi fyrir eftirlitið í heild. Með því skapast betri yfirsýn yfir stöðu eftirlits á landsvísu og auðveldara verður að nálgast samræmd gögn. Kerfið mun jafnframt styðja við aukna sjálfvirkni í afgreiðslu umsókna um starfsleyfi og skráningar þar sem það á við. Ávinningurinn felst í styttri afgreiðslutíma, aukinni skilvirkni, betri gæðum gagna og tímasparnaði fyrir starfsfólk.  

Með auknu samræmi í skýrslugerð og upplýsingagjöf eykst skýrleiki í samskiptum eftirlitsaðila og fyrirtækja. Fyrirtæki geta þannig notið hagræðis, bæði með skýrari leiðbeiningum og sparnaði í tíma við úrbætur og eftirfylgni.  

Í grófum dráttum fela breytingarnar í sér að: 

  • Stjórnsýsla og eftirlit færist til ríkisstofnana. 

  • Heilbrigðisnefndir verði lagðar niður og þar með heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. 

  • Fagleg samræming og verklag verði styrkt. 

  • Þörf fyrir samræmingarhlutverk miðlægrar stofnunar verði ekki lengur fyrir hendi. 

  • Heildaryfirsýn verði náð með hjá einu stjórnvaldi sem annast alla stjórnsýslu og eftirlit. 

Markmiðið er að skapa skýrara, einfaldara og skilvirkara kerfi sem tryggir samræmda framkvæmd um allt land. 

Í frumvarpinu er bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að starfsfólk sem sinnir verkefnum sem færast til Umhverfis- og orkustofnunar njóti forgangs til þeirra starfa sem verða til hjá stofnuninni vegna lagabreytinganna. Með forgangsrétti til starfa er ekki skylt að auglýsa þau störf sem verða til.  

Í ferlinu er lögð áhersla á að ávinningur breytinganna fyrir almenning og rekstraraðila sé að þjónustan verði skilvirkari. Þannig er breytingunni ekki ætlað að leiða til fækkunar starfa eða tilfærslu milli landshluta, og er því lagt upp með að störf haldist í heimabyggð eins og kostur er, enda skiptir staðbundin þekking miklu máli fyrir gott eftirlit og þjónustu. 

Leyfi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi verður afnumið. Menntun starfsfólks verður áfram mikilvæg í viðkomandi störfum eftirlits og almennt í stjórnsýslunni. Almennt mun öll sú reynsla sem hefur byggst upp innan heilbrigðiseftirlitsins verða mikilvæg í nýju kerfi.  

Stefnt er að því að almenningur og fyrirtæki fái: 

  • samræmda og fyrirsjáanlegri stjórnsýslu og framkvæmd, 

  • betra aðgengi að upplýsingum, 

  • aukið gagnsæi (t.d. um kröfur, ferli og niðurstöður), 

  • hraðari og skýrari samskipti við stjórnsýsluna. 

Lagt er upp með sameiginlegt upplýsingakerfi sem á að styðja við stöðlun og auðvelda bæði eftirlit og upplýsingagjöf.

Áætlað er að kostnaður eftirlits fyrir og eftir tilfærslu verkefna til Umhverfis- og orkustofnunar verði sambærilegur.  

Þróað verður áhættumiðað eftirlitslíkan þannig að eftirliti verði beint að þeirri starfsemi sem helst þarf aðhald. Þeir eftirlitsþegar sem standa sig vel muni því t.a.m. fá færri eftirlitsheimsóknir.  

Frumvörpin gera ráð fyrir samstarfi fyrirhugaðrar Stofnunar atvinnuveganna (nú MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs) og Umhverfis- og orkustofnunar og að þeim verði heimilt að framselja framkvæmd eftirlits sín á milli, en ekki valdsvið og þvingunarúrræði.  

Þá er gert ráð fyrir nýju sameiginlegu upplýsingakerfi þannig að stofnanirnar hafi aðgang að rauntíma upplýsingum.  

Framangreindar aðgerðir miða að því að farið verði í skilvirkar eftirlitsheimsóknir sem nýtast báðum stofnunum.  

Frumvarpið gerir ráð fyrir að ákveðin verkefni flytjist til sveitarfélaga. Þar er annars vegar um að ræða aukið hlutverk í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun í tengslum við loftgæði og vöktun vatns. Hins vegar felur frumvarpið í sér að sveitarstjórnir fái skýrari heimildir til að beita þvingunarúrræðum á grundvelli eigin samþykkta, í þeim tilvikum þar sem framkvæmd og eftirlit er á þeirra forræði en ekki hjá Umhverfis- og orkustofnun. 

Einnig má gera ráð fyrir að ákveðin verkefni sem nú eru á forræði heilbrigðisnefnda færist til sveitarfélaga með breytingum á reglugerðum. Megnið af eftirlitsverkefnum mun þó færast til Umhverfis- og orkustofnunar. 

Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að sveitarfélög geti átt samstarf sín á milli um framkvæmd þeirra verkefna sem til þeirra færast. Þá verður áfram hægt að leita til Umhverfis- og orkustofnunar eftir sérfræðilegri ráðgjöf á sviði hollustuhátta og mengunarvarna. 

Ekki er gert ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög, þó að tiltekinn einskiptiskostnaður geti fallið til. 
Samkvæmt frumvörpunum er gert ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2027.