LIFE ICEWATER – Metnaðarfullt samstarfsverkefni um bætt vatnsgæði á Íslandi

Umhverfis- og orkustofnun, í samstarfi við 22 aðila víðs vegar úr samfélaginu, hlaut um 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu til að hraða og efla innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.

Verkefnið nefnist LIFE ICEWATER og nýtur einnig stuðnings umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Markmið LIFE ICEWATER

Verkefninu er ætlað að:

  • Auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi.
  • Tryggja samræmda og skilvirka stjórnsýslu í vatnamálum.
  • Bæta vatnsgæði, meðal annars með úrbótum í fráveitu og aukinni hreinsun skólps.
  • Fræða almenning og hagsmunaaðila um mikilvægi vatnsauðlinda.
    Með LIFE ICEWATER skapast einnig tækifæri til nýsköpunar í stjórnsýslu, þar sem unnið verður þvert á stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki til að bæta vatnsgæði um allt land og hámarka samfélagslegan ávinning.

Eitt stærsta LIFE-verkefni Íslands

Styrkur Evrópusambandsins er einn sá stærsti sem Ísland hefur hlotið til þessa. Heildarumfang verkefnanna nemur um 5,8 milljörðum króna, þar af fjármagnar LIFE-áætlun ESB um 60%, eða 3,5 milljarða króna, sem fara til samstarfsaðila.

Verkefnið verður unnið á árunum 2025–2030.

Samstarfsaðilar LIFE ICEWATER

Auk Umhverfis- og orkustofnunar taka eftirfarandi 22 aðilar þátt í verkefninu: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Eimur, Gefn, Grundarfjarðarbær, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hveragerðisbær, Isavia, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Matvælastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruminjasafn Íslands, Orka náttúrunnar, Orkustofnun, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Veðurstofa Íslands og Veitur.

Óbeinir þátttakendur: Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

Skrá sig á póstlista verkefnisins.

Skipulag LIFE ICEWATER

LIFE ICEWATER verkefninu er skipt upp í 7 vinnupakka en yfirlit yfir aðgerðir hvers vinnupakka má sjá á myndinni hér fyrir neðan:

Smelltu á myndina til að sjá hana í betri upplausn