Atvinnuréttindi útlendinga

Lög um atvinnuréttindi útlendinga gilda um heimild útlendinga til atvinnu hér á landi. Samkvæmt lögunum er meginreglan sú að útlendingar þurfa atvinnu- og dvalarleyfi til að starfa hér á landi en þó er gert ráð fyrir ákveðnum undanþágum frá þeirri reglu.

Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Nánari upplýsingar má finna á vef Vinnumálastofnunar.