Flóttafólk

Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu dauðarefsingu, pyndingar eða ómmannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu geta sótt um vernd hér á landi. Mismunandi reglur gilda um þjónustu til þeirra sem fengið hafa vernd hér á landi:

Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda (kvótaflóttafólk)

  • Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda hefur stundum verið kallað kvótaflóttafólk. Stjórnvöld móttökuríkja ákveða þá sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau vilja taka á móti.

Flóttafólk sem kemur á eigin vegum til landsins (umsækjendur um alþjóðlega vernd)

  • Útlendingastofnun annast afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi en umsóknir eru lagðar fram hjá lögreglu. Sjá nánar hvaða reglur gilda um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd á vef Útlendingastofnunar.

Móttaka flóttafólks

Sjá sérstaka undirsíðu hér á vefnum um móttöku flóttafólks.