Móttaka flóttafólks

  • Flestir umsækjendur um alþjóðlega vernd koma frá Úkraínu en hingað leitar einnig fólk víða annars staðar frá í leit að vernd. Íslensk stjórnvöld hafa sömuleiðis boðið hópum í viðkvæmri stöðu til landsins.
  • Hér fyrir neðan er að finna umfjöllun um réttindi flóttafólks og hlutverk hinna ýmsu stofnana við móttöku fólksins, auk tengils á síðu með margvíslegri tölfræði.
Lykilupplýsingar, móttaka flóttafólks

Lykilupplýsingar

Hversu mörg börn hafa komið til landsins og sótt um alþjóðlega vernd? En fullorðnir? Hvaðan kemur fólkið og hver er tímalínan? Lykilupplýsingar á vefnum eru uppfærðar daglega.

Skoða lykilupplýsingar

Samningar um samræmda móttöku flóttafólks

  • Sveitarfélög vítt og breitt um landið hafa undirritað samninga um svokallaða samræmda móttöku flóttafólks. Samningarnir eru gerðir við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, ásamt Vinnumálastofnun. Sveitarfélög ákveða sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau taka á móti samkvæmt samningnum.
  • Samræmd móttaka flóttafólks er hugsuð fyrir þau sem fengið hafa alþjóðlega vernd á Íslandi og þurfa stuðning við að ná rótfestu hér á landi (sjá einnig spurningu um samræmda móttöku hér neðar á síðunni)
  • Samningur um samræmda móttöku flóttafólks samanstendur af samningnum sjálfum og tveimur fylgiskjölum: Kröfulýsingu og kostnaðarlíkani. Öll skjölin er að finna hér á vefnum:
Samningur um samræmda móttöku flóttafólksListi yfir húsbúnað - fylgiskjal með samningi 2024Kostnaðarlíkan, dags. 3. janúar 2024

Alþjóðleg vernd og mannúðarsjónarmið

Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu til að mynda dauðarefsingu, pyndingar eða ómannúðlega meðferð eiga rétt á alþjóðlegri vernd sem flóttamenn.

Þau sem koma hingað til lands og óska eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamenn teljast vera umsækjendur um alþjóðlega vernd. Áður var talað um hælisleitendur – fólk í leit að hæli, það er griðastað.

Flóttafólkið sem leitað hefur skjóls á Íslandi frá Úkraínu eftir innrás Rússlands hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sjá spurt og svarað hér að neðan.

Spurt og svarað um umsækjendur um alþjóðlega vernd og móttöku flóttafólks