Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Orka, Alþjóðamál
Loftlags-, auðlinda- og umhverfismál
Utanríkisráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Loftlags-, auðlinda- og umhverfismál
Loftslags,- auðlinda- og umhverfismál eru grundvallarhagsmunamál fyrir Ísland. Virk þátttaka í alþjóðasamstarfi um þessa málaflokka er eitt af meginverkefnum utanríkisþjónustunnar og getur skipt sköpum í hagsmunagæslu fyrir Ísland á alþjóðavettvangi til að tryggja eftir föngum að nýjar lausnir og viðbrögð í loftslags-, auðlinda- og umhverfismálum falli að hagsmunum Íslands. Með virkri þátttöku getur Ísland einnig lagt sitt af mörkum til að þróa og byggja upp grænt hagkerfi til framtíðar, bæði heima og erlendis, til hagsbóta fyrir bæði sig og aðra