Um sendiskrifstofu
Sendiráð Íslands í London var opnað árið 1940 og var annað íslenska sendiráðið sem opnað var eftir að íslenska utanríkisþjónustan var stofnuð sama ár. Sendiráðið þjónar Bretlandi, auk umdæmislöndunum Írlandi og Möltu.
Fjórtán ræðisskrifstofur eru í umdæmislöndum sendiráðsins, þar af ellefu í Bretlandi. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) í London.
Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála. Á árinu 2018 bjuggu á milli tvö og þrjú þúsund Íslendingar í Bretlandi og á árinu 2019 nam fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi sem komu frá Bretlandi um 262 þúsund manns.
Sendiráð Íslands - London
Heimilisfang:
55 Sloane Street
London SW1X 9SR, UK
Sími: (+44-20) 7259 3999
Netfang: [email protected]
Opnunartími: Afgreiðsla mán-fim kl. 09:00 - 16:00 og fös 09:00 - 16:00. Símatími mán-fös kl. 10:00 - 13:00