Um sendiskrifstofu

Fastanefnd Íslands í Genf tók til starfa 1. mars 1970 samhliða aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og er einnig sendiráð gagnvart Sviss, Liechtenstein og Páfagarði. Fastanefndin fer með fyrirsvar Íslands gagnvart EFTA og hinum fjölmörgu alþjóðastofnunum sem hafa aðsetur í Genf.

Alþjóðaviðskipti skipa afar stóran sess í starfi fastanefndarinnar, bæði vegna yfirstandandi samningalotu (Doha) Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og eins vegna fríverslunarviðræðna EFTA við önnur ríki. Utanríkisþjónustan nýtur fulltingis hlutaðeigandi ráðuneyta í þessum samningaviðræðum en í flestum tilvikum annast fastanefndin samræmingu og daglega stjórn samningaviðræðna í samráði við viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, ráðuneytisstjóra og ráðherra.

Sameinuðu þjóðirnar eru með fjölbreytta starfsemi í Genf en mannréttinda- og mannúðarmál er mikilvægur þáttur í starfsemi fastanefndarinnar. Fastanefndin leggur sérstaka áherslu á þessa málaflokka og vinnur þar að markmiðum Íslands í samstarfi við alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og í góðu samráði við fastanefnd Íslands í New York.

Þátttaka Íslands í starfi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og Alþjóðahugverkaréttarstofnunarinnar er einnig mikilvægur hluti af starfsemi fastanefndarinnar auk þess sem hún sinnir eftir föngum starfi í hinum fjölmörgu öðru alþjóðastofnunum sem undir hana heyra.

Fastanefnd Íslands - Genf

Heimilisfang:

Chemin du Pommier 42
Kyoto building, 4th floor
1218 Grand Saconnex
Geneva, Switzerland

Sími: +41 (0) 22 716 1700

Netfang: [email protected]

Opnunartími: Afgreiðsla: Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00 Föstudaga 09:00 – 15:00

Nafn Starfsheiti Netfang
Arndís Ósk Magnúsdóttir starfsnemi

[email protected]

Edda Magnus staðarráðinn sérfræðingur

[email protected]

Einar Gunnarsson sendiherra

[email protected]

Gabriela Garcia Merchan aðstoðarmaður sendiherra

[email protected]

Helen Inga von Ernst ráðunautur

[email protected]

Jóhanna Jónsdóttir varafastafulltrúi

[email protected]

Lenya Rún Taha Karim starfsnemi

[email protected]

Ögmundur Hrafn Magnússon sendiráðunautur

[email protected]

Páll Magnússon sendiráðunautur

[email protected]

Rebekka Karlsdóttir starfsnemi

[email protected]

Sóley Ásgeirsdóttir ráðunautur

[email protected]

Tinna Þórarinsdóttir annar sendiráðsritari

[email protected]

Fastafulltrúi

Einar Gunnarsson (2023)

Ferilskrá (á ensku)

Curriculum Vitae

Born 1966

Current position

2022 -     Ambassador, Permanent Representative of Iceland to the International Organisations in Geneva.

2022 –     Ambassador to Switzerland.

Previous positions:

2021 – 2022    Ambassador, Office of the Permanent Secretary of State, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík.

2019 – 2021    Ambassador Arctic Affairs, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík. Chair of the Senior Arctic Officials of the Arctic Council during Iceland’s Chairmanship of the Council.

2015 – 2018     Ambassador, Permanent Representative of Iceland to the United Nations, New York. Non-resident Ambassador to Cuba.

2009 – 2014     Permanent Secretary of State, Ministry for Foreign Affairs.

2008 – 2009     Director – Chief Negotiator, Department of International Trade Negotiations, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík.

2007 – 2008     Director of Human Resources for the Foreign Service of Iceland, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík.

2004 – 2006     Deputy Permanent Representative/Minister-Counsellor, Permanent Mission of Iceland to the International Organisations, Geneva.

2000 – 2004     Counsellor, Embassy of Iceland/Mission of Iceland to the EC, Brussels.

1998 – 2000     First Secretary/Counsellor, External Trade Department, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík.

1996 – 1998     Legal Adviser/Deputy Director, Defence Department, Ministry for Foreign Affairs, Reykjavík.

1992 – 1995     Lawyer, GÁJ Law Firm, Reykjavík.

Education:

  • Law Degree (Cand. Juris) from the University of Iceland 1992.

Personal:

  • Married to Elisabet Thordardottir, Clinical Psychologist. Two grown-up children.