Þjónusta við Íslendinga

Sendiráð Íslands gagnvart Sviss er staðsett í Genf og hefur það hlutverk að veita þeim Íslendingum sem búsettir eru í Sviss og eiga hér leið um margvíslega þjónustu.

Sendiráðið annast m.a. útgáfu vegabréfa, neyðarvegabréfa og svo eitthvað sé nefnt.

Sé þörf á frekari upplýsingum um aðstoð við Íslendinga erlendis er bent á vef borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins en í neyðartilfellum má ná í starfsmann borgaraþjónustu í síma +354 545 9900

Umsókn um vegabréf

Ökuskírteini

Sá sem hefur fasta búsetu erlendis og glatar íslensku ökuskírteini sínu getur ekki lengur sótt um endurútgáfu þess. Föst búseta miðast við að viðkomandi búi a.m.k. 185 daga erlendis á hverju almanaksári.  Undanskildir eru aðilar sem dvelja erlendis vegna tímabundinna verkefna eða náms (12. gr. tilsk. nr. 2006/126/EBE).  Íslendingar með fasta búsetu erlendis verða því að sækja um nýtt ökuskírteini í því landi sem þeir teljast hafa fasta búsetu.

Íslensk ökuskírteini eru gild í Sviss en jafnframt þarf að framvísa alþjóðlegu ökuskírteini eða löggilda þýðingu á ökuskírteininu (á ensku, frönsku, þýsku, ítölsku).  Hafi viðkomandi verið búsettur í Sviss í meira ein 12 mánuði þarf að sækja um svissneskt ökuskíretini.

Nánari upplýsingar um svissnesk ökuskírteini

Fjarpróf

Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.

Ferlið

  • Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
  • Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
  • Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
  • Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
  • Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
  • Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.

Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.

Annað

  • Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
  • Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
  • Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
  • Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
  • Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.