Um sendiskrifstofu
Stjórnmálasambandi milli Íslands og Svíþjóðar var komið á þann 27. júlí 1940.
Aðalverkefni sendiráðsins eru:
- Að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga í Svíþjóð og umdæmislöndum sendiherra.
- Að annast þjónustu við Íslendinga í Svíþjóð og umdæmislöndunum.
- Að stuðla að auknum samskiptum landanna á sviði viðskipta.
- Að auka menningarsamskipti landanna og koma íslenskri menningu á framfæri í Svíþjóð og í umdæmislöndunum.
- Að miðla upplýsingum um Ísland og íslensk málefni og svara fyrirspurnum frá einstaklingum og stjórnvöldum.
Ræðismenn í umdæmislöndum sendiráðsins eru fimm talsins; þrír í Svíþjóð, tveir á Kýpur.
Sendiráð Íslands - Stokkhólmur
Heimilisfang:
Kommendörsgatan 35
SE-114 58 Stockholm
Sími: +46 (0) 8 442 8300
Netfang: [email protected]
Opnunartími: Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:30 - 15:30