10 maí 2022
Íslenskur skiptibókamarkaður og upplestur fyrir börn
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Sigurfljóð í grænum hvelli eftir Sigrúnu Eldjárn, á bæði íslensku og sænsku í sérstakri útgáfu fyrir tvítyngd börn, verður stórskemmtileg barnadagskrá á Internationella biblioteket á Kungsholmen, sunnudaginn 22. maí, með upplestri, vinnustofu og íslenskum skiptibókamarkaði.