Um sendiskrifstofu

Sendiráðið þjónar Frakklandi og sjö öðrum ríkjum, þ.e. Alsír, Ítalíu, Líbanon, Marokkó, Mónakó, Portúgal og Túnis. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).

Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningarmála. Sendiráð Íslands í París var opnað þann 10. janúar árið 1946.

Sendiráð Íslands - París

Heimilisfang:

52, Avenue Victor Hugo
FR-75116 Paris, France

Sími: +33 (0)1 44 17 32 85

Netfang: [email protected]

Opnunartími: 09:30-16:30 virka daga (símatími 09:30-12:30)

Nafn Starfsheiti Netfang
Bergur Arnar Hrafnkell Jónsson fulltrúi

[email protected]

Erla Óladóttir í leyfi

[email protected]

Kristín Halla Kristinsdóttir varafastafulltrúi

[email protected]

Lilja Björk Stefánsdóttir aðstoðarmaður sendiherra

[email protected]

María Mjöll Jónsdóttir sendiherra

[email protected]

Marta Jónsdóttir varamaður sendiherra

[email protected]

Ólafur Sigurðsson varafastafulltrúi

[email protected]

Paloma Desoille í leyfi

[email protected]

Thomas Fauvet bifreiðastjóri

[email protected]

Sendiherra

María Mjöll Jónsdóttir

María Mjöll Jónsdóttir tók við sem sendiherra í París í ágúst 2025. Þar áður var hún skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra mála, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar og deildarstjóri Sameinuðu þjóðanna, alþjóðamála og kynjajafnréttis. Þá gegndi hún stöðu sendiráðsritara við fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York 2007-2015.

María Mjöll útskrifaðist með mastersgráðu í alþjóðasamskiptum (SIPA) frá Columbia háskóla 2006 og með BA gráðu í spænsku og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2003. Þá lauk hún námi í klassískum söng (ABRSM) frá Söngskóla Reykjavíkur 2001.

María Mjöll er gift og á þrjú börn.