Skrifstofa efnahagsmála
Skrifstofa efnahagsmála leiðir undirbúning og eftirfylgni með efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar ásamt því að vera ráðherra til ráðgjafar um efnahagsleg- og hagstjórnarleg málefni. Hún vinnur auk þess að samhæfingu hagstjórnar og fer því með samskipti ráðuneytisins og Seðlabanka Íslands á því sviði. Í því skyni vaktar skrifstofan hagþróun og annast greiningar, þ.m.t. sviðsmynda- og fráviksgreiningar og annast samskipti um gerð þjóðhagsspár.
Skrifstofan ber ábyrgð á gerð skýrslu ráðherra um horfur og þróun til lengri tíma. Þá styður hún aðrar skrifstofur við greiningar á hagstjórnarlegum úrlausnarefnum auk þess að leiða starf við hagstjórn loftslagsmála. Skrifstofan ber ábyrgð á kynningu á efnahags- og hagstjórnarmálum innanlands og utan, samskiptum ráðuneytisins við erlend lánshæfismatsfyrirtæki í samstarfi við skrifstofu stjórnunar og umbóta, auk samskipta við ýmsar alþjóðlegar stofnanir á sviði efnahagsmála, þ.m.t. Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD).
Skipulag